|
|
:: fimmtudagur, október 28, 2004 ::
Hætt í bili...!!
Það virðist mér um megn þessa dagana að halda úti 2 bloggum....svo ég ætla að taka mér pásu frá þessari síðu í einhvern tíma...planið er nú samt að starta henni aftur innan tíðar!!
Á meðan mun ég einbeita mér betur að www.blog.central.is/pullur síðunni sem við í Pullunum höldum út......getið fylgst með þar!!
Verðum í bandi pípól!
:: fimmtudagur, október 14, 2004 ::
FARIN TIL KÖBEN!! ..kem heim á þriðjudagskveld!
Bless í bili...
FARIN TIL KÖBEN!! ..kem heim á þriðjudagskveld!
Bless í bili...
:: miðvikudagur, október 13, 2004 ::
úbbs!!
Ég hef eiginlega bara misst mig í þessa nýju síðu sem við Selma, Líney, Herdís og Tinna erum með og hefur þetta grey hér því alveg orðið útundan. Mar reddar því þó ;)
Lítið er í fréttum, nema náttla KÖBEN ekki á morgun heldur hinn!!! Can't wait!! og ég mun líka ná að hitta Grétu og alles!! Tónleikar, verslun, skemmtun, Gréta....þetta er sonna smá partur af planinu!! ohh hvað ég hlakka til!!
Námsátakið er enn í gangi og hefur mér tekist að fá 7,7 í íslensku, 8,8 í sögu og 9 í bókfærslu! Já bara allt á uppleið...reyndar er ég mesta lúðan við Excel, og þarf að læra Rekstur Fyrirtækja í því, en þannig er með mig að þó að ein tala sé skrifuð í excel get ég ekki gert hana, ég bara KANN EKKERT á excel!! Það truflar allt mig þegar inn í þetta forrit djöfulsins er komið!! Enda fékk ég bara 5 í Rek. FT prófinu....en ég atla nú ekki að kenna bara excelinu um það, ég sit aftast í tölvustofunni og mar freistast "af og til " til þess að vera frekar á netinu eins og gengur og gerist...en ég fæ hvorteðer ekki góða kennslu í þessu svo ég get ekkert fylgst með!!...
Það er nú samt einn, og BARA einn galli við það að vera að fara út, ég missi af hörkuleik á Föstudaginn, Fram- HK , en ég sendi liðinu bara góða strauma!!! Eins gott að þið vinnið strákar! Í staðinn mun ég fara og kvetja Grétu okkar til dáða á handboltavellinum!! :)
Vill einhver samt plís senda mér hálfleiks og lokatölur á föstudaginn???????
Svo missi ég líka af morgunæfingu kl 6:30...græt það sosum ekki ;)
jæja ætla að koma mér í háttinn!!
:: þriðjudagur, október 05, 2004 ::
Ákvað að halda þessari síðu...
Já ætli maður sé ekki bara orðinn of emotionally attached to this website, þar sem ég er nú búin að vera með þessa síðu hér í um það bil 2 ár. En í staðinn ákvað ég að opna ásamt my fellow pullum hina örgustu snilldar síðu,
www.blog.central.is/pullur
Já þarna munum við stöllur, Líney ég og Selma betrumbæta heiminn með fallegum gullkornum eins og okkur einum er lagið ! :) Tékk it át....
Annars er nú bara það í fréttum að ég er alveg að brillera held ég í skúlen, fékk 9 í bókfærsluprófi, og var að fá 8,9 í stjórnunaræfingarprófi og skilaði þessari líka fínu ritgerð í dag. Var reyndar líka í lögfræðiprófi sem gekk nú reyndar bara sonna upp og ofan....:/ en þetta kemur allt saman í ljós. Svo á fimmtudaginn fellur nærri því allur skóladagurinn niður hjá mínum bekk þar sem við erum að fara á ráðstefnu með krökkum frá Norðurlöndunum og Bretlandi sem eru líka að gera svona fyrirtæki eins og okkar bekkur (báðir viðskiptabekkirnir eru að gera svona verkefni), vorum við valin frekar en hinn bekkurinn því við erum náttla bara best, gáfuðust og fallegust ;) Eigum að halda fyrirlestur á ensku fyrir etta fólk um fyrirtækið okkar, svo er öllum boðið saman á hard rock og svo er allra þjóða kvikindum blandað saman í nokkra hópa og vinna verkefni og kynna niðurstöður... Þetta hljómar bara nokkuð gaman! Allavega skemmtilegra en bókfærsla, íslenska og sonna essi týpýski skóladagur almennt ;)
Góðar stundir, og GLEYMIÐ EKKI AÐ TÉKKA Á NÝJU SÍÐUNNI!!!
:: laugardagur, október 02, 2004 ::
Nenni bara ekki að blogga...
Fór norður í gær, geggjað gaman! Búið að vera mikið að gera....er að pæla í að skipta yfir á blog.central.is....hvað segir fólk um það??
æji ég er alltof lööööt...
:: sunnudagur, september 26, 2004 ::
Módeldraumar...???
Nei ég held nú ekki. Annars hefur margrómuð bloggleti verið að hrjá mig undanfarna daga. Föstudagurinn var tekinn snemma, n.t. kl 6 vaknaði maður alveg "eldhress" og fór á æfingu! Mikill galsi í gangi en fín æfing samt hehe ;) Svo tók skólinn við og fór maður síðan heim og tók það bara rólega. Ætlaði að reyna að sofna en það tókst nú ekki. Skellti mér síðan á HK - FH og vá það er ekki einu sinni fyndið hversu arfaslakt þetta blessaða FH lið er...lá við að maður vorkenndi greyjunum....en ég gerði það samt ekki!:) Fyrir þá sem ekki náðu því þá semsagt vann HK leikinn. Gott mál það. Settist aðeins uppí Hákon Digra með Tinnu, hún ætlaði að skutla mér heim... en það endaði nú ekki þannig. Í staðinn endaði ég sem driver á bílnum hans Gauja, skutlaði honum og einhverjum dúdda (don´t remember the name...) á eftir Tinnu heim til Sigga bróður hennar...Selma og Líney flutu með, Selma etta voru kjuuul buxur sem þú varst í hehe ;) Enduðum svo á að kíkja inn til Sigga, allar nema Tinna sem gerðist námshestur! Tinna mín ég er stolt af þér!!:) Skutluðum svo Steina, Sigga og Þórði í bæinn, Selma keyrði nota bene JEPPANN hans sigga..hún var eins og maur inní þessu flykki! En Selma mín þú stóðst þig vel :)
Vaknaði svo í gær og fór að þjálfa með og fyrir Strúnu sem þurfti að yfirgefa svæðið til að taka Fram stúlkur í smá kennslustund. Því er ekki að að spyrja að stúlkan náði sér í nokkur stykki brottvísanir í leiknum, sem enduðu á fallega rauðu spjaldi rétt fyrir leikslok... Strúna mín er þetta ekki kunnulegt??
Síðan fór ég nú bara heim og var e-ð að stússast og ekki stússast fram eftir degi. Um kvöldið skelltum við systur okkur svo í Bítlabæinn Keflavík og fórum í tvítugsafmælið hans Atla frænda, paparazzi ljósmyndara með meiru hehe ;) þar var alveg ágætt , m.a. var rifjað upp Jackson rútínan fræga og rokklingaskólinn hehehe. Kom heim um 1 leytið og fór þá bara uppí. Í morgun vakti Líney nokkur mig og dró mig með sér á HK - Keflavík í undanúrslitum bikarsins í fótbolta. Var nokkuð jafnræði með liðunum, en urðu mínir menn samt að játa sig sigraða og lokatölur urðu 1 - 0. Kíktum svo niðrí bakarí á hana Bryndísi Kjútí...allt í góðum gír þar. Svo er ég varla komin inn úr dyrunum hér heima þegar hún Margrét Anna hringir í mig með smá bón. Ég segi bara já og rík aftur út, og haldiði ekki að maður sé bara að fara að birtast í einhverjum tryggingamiðstöðvarbæklingi?? jújú mikið rétt, ég þurfti að labba nokkur skref fram og til baka á HÆKJUM fyrir framan ljósmyndara, og klædd í sonna 5 stk af ullasokkum á einni löpp til að líta út fyrir að vera í gifsi! Þetta var fyrsta og ábyggilega eina módel reynsla mín hehehe.
Heyrði aðeins í Grétu líka á msn, gaman að því loksins eftir langan tíma! Danir virðast ekki vera alveg að ná réttum handboltareglum þarna úti hmm....
Annars held ég að setning helgarinnar hafi klárlega verið "Ég á litla, tælenska mús!"Stelpur þið vitið hva ég meina hehe ;)
Annars til Hildar Mistar...ertu buin að fá sendinguna frá mér ???? ;)
Nú var hún Selma að koma til mín svo ég ætla að segja þessum pistli slitið hér með nokkrum fögrum orðum sem hún biður um:
Selma er yndisleg mannvera og góður vinur bæði manna og dýra! Hún má ekkert aumt sjá, og réttir fram hendina ef einhver er hjálpar þurfi. Selma þú ert YNDI!!
ánægð...???
:: fimmtudagur, september 23, 2004 ::
Merkilegt hvað maður missir sig stundum í duglegheitunum....
Var bara núna klukkan rétt tæplega hálf eitt að enda við að handskrifa 22 þéttskrifaðar glósur úr Íslenskri málsögu! Er að fara í próf sko á morgun og ákvað að taka einn nettan "ég glósa bara alla kaflana á nótæm" á etta...ekki beint alveg á no tæm þ.s. ég tók fyrstu 2 kaflana í gær, og byrjaði aftur í dag strax um hálf5, hætti hálf6 og fór að dæma í æfingarleik hjá litlunum sem stóðu sig bara með stakri prýði ekki satt strúna ;) svo náttla þurfti maður aðeins að standa smástund fyrir utan Digranesið góða og skiptast á fréttum við Stuðdrottninguna hehe...eníveis, kom heim um korter í sjö, beint aftur í að glósa, og hélt því áfram alveg fram í hálfan footballers wifes þátt, horfði á restina af honum, hélt svo áfram núna og var bara að klára! Vúff..er dauð í hendinni...já það virðist enn sem komið er á öllu að þetta námsátak mitt sé alveg að gera sig! :)
Annars er nú voða lítið í gangi annað, kennarar Verzlunarskólans eru að missa sig í prófum núna...próf próf próf maður heyrir lítið annað! Helgin er voða lítið plönuð ennþá sosum, veit bara að fyrst að það er leikur á föstudagskvöldið (sem maður mætir nú pottþétt á ekki satt fólk!) þá eigum við víst að mæta á föstudagsmorguninn í staðinn á æfingu, kl hálf7!!! það verður erfitt..en þess virði býst ég við! svo var hann Atli Már frændi minn, betur þekktur sem fyrsti og eini paparazzi ljósmyndari Íslands að hringja í kvöld og bjóða manni í rokna tvítugsafmælisveislu á laugardaginn, en hún er reyndar haldin í Keflavík svo þetta er enn allt óráðið....en etta kemur nú í ljós undir lokin!:)
Jæja ætla að fara að koma mér í rúmið, orðin ofur þreytt eftir allt þettar glossarien machen og svo er hendin mín formlega dauð núna eftir allt þetta pikk!!!
Guð geymi ykkur, og enn og aftur sérkveðjur til útlendinganna minna....ekki illa meint til hinna en þessa dagana hugsa ég bara sonna ossalega mikið til útlanda :)
|